Hvatapeningar fyrir yngri en 5 ára

Hvatapeningar fyrir yngri en 5 ára

Lagt er til að hvatapeningar fyrir börn verði í boði frá þeim aldri sem börn geta hafið íþróttaiðkun — þ.e. 2-3 ára — í stað þess að miða við 5 ára aldursár eins og nú er gert.

Points

Því fyrr sem börn byrja í skipulagðri hreyfingu, þeim mun fyrr þróast hreyfiþroski og grunnfærni. Íþróttastarf eflir líka félagsfærni og samvinnu strax á fyrstu árunum.Með því að styðja við 2–3 ára börn jafnar sveitarfélagið tækifæri, léttir undir með fjölskyldum og sýnir framsýni með snemmtækri íhlutun. Fjárfestum í þeim allra yngstu líka strax frá upphafi!

Það er mikilvægt að börn á öllum aldri hafi jafnan aðgang að íþróttaiðkun óháð tekjum foreldra. Það er mikilvægt að kynna íþróttir fyrir börnum sem fyrst, til að vekja áhuga.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information